Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 22. janúar 2009

Sendur aðra hvora viku
til 775 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Tilkynningaskyldan | Nýtt vídeó | Uppskrift dagsins | Bestu kaupin | Úr fundarherberginu

TILKYNNINGASKYLDAN
Vín og matur á Facebook

Síðasta vígið er fallið. Eins og allir aðrir landsmenn erum við komin með síðu á Facebook.

Þar geturðu fylgst með nýjustu bloggfærslunum, skoðað myndir og vídeó, lesið stuttar hugleiðingar úr daglegu lífi vínsalans og síðast en ekki síst skrifað á vegginn.

Varstu að smakka eitthvað af vínunum okkar? Notaðu vegginn til að segja okkur hvað þér fannst. Fannstu eitthvað gott vín í útlöndum sem þú vilt sjá í Vínbúðunum? Settu það á vegginn. Fékkstu hugljómun og skrifaðirðu ljóð eftir að hafa drukkið tvö glös af Lambrusco Scuro? Settu það á vegginn.

Vín og matur á Facebook »

MYNDBÖND MÁNAÐARINS
Le Voyage en France — íslensk kvikmyndasúpa

Við skruppum til Frakklands síðasta haust til að spóka okkur og heimsækja nokkra vínframleiðendur.

Í ferðinni tókum upp nokkur myndbrot sem nú er búið að stytta, klippa og raða saman í stutta kvikmynd sem leyfð er fyrir alla aldurshópa.

Við vorum svo heppin að uppskeran og víngerðin voru í fullum gangi hjá framleiðendunum sem við heimsóttum í suðvesturhluta Frakklands og í Búrgúndarhéraðinu.

Engir þekktir leikarar eru í kvikmyndinni fyrir utan bloggarann sem fer með aðalhlutverkið auk þess að framkvæma sjálfur öll áhættuatriðin en í því fólst meðal annars að innbyrða talsvert af léttvíni.

Fagfólk og áhugafólk um kvikmyndir er beðið velvirðingar á þeim lögmálum í kvikmyndagerð sem flest ef ekki öll eru brotin í þessari 10 mínútna, heimalöguðu myndasúpu eins og við kjósum að kalla þessa kvikmynd.

Skoðaðu vídeóið af heimsókninni til Frakklands »

UPPSKRIFT DAGSINS
Cannelloni með spínati og ricotta

Þessi uppskrift er ódýr, frekar einföld og saðsöm svo hún getur mettað marga svanga maga.

Spínat er líka hollt og styrkir vöðvana, sérstaklega framhandleggsvöðvana (sjá mynd).

Við buðum gestum okkar upp á þennan rétt í vikunni og sló hann í gegn.

Eins og alltaf borðaði bloggarinn mest.

Hvítvínstár sakar alls ekki með, við höfðum Poggio dei Gelsi frá Falesco sem passaði mjög vel.

Uppskriftin af Cannelloni með spínati og ricotta er hér »

BESTU KAUPIN
Hvernig gera má góð kaup í Vínbúðunum

Þótt öll vín hafi hækkað eitthvað í Vínbúðunum upp á síðkastið (t.d. vegna hækkunar áfengisgjalds) þá er ennþá hægt að finna þar vín á gamla verðinu, þ.e.a.s. vín sem voru flutt inn og greidd fyrir fall krónunnar.

Þannig verður það ekki mikið lengur því að það saxast smám saman á þær birgðir og fyrr en varir þarf að kaupa inn nýjan lager á nýja genginu.

Þetta á sérstaklega við um fimm vín sem eru uppseld hjá okkur en ný sending á nýju verði mun koma til landsins í febrúar. Það sem til er í Vínbúðunum af þeim ennþá mun fást á gamla verðinu út janúar á meðan birgðir endast.

Vínin fimm eru Chianti Classico (nú 1.973, verður 2.890 kr.), Chianti Classico Riserva (nú 3.018, verður 3.790 kr.) og Vin Santo (nú 2.871, verður 3.790 kr.) frá Castello di Querceto og Lambrusco Scuro (nú 1.775, verður 1.980 kr.) og Moscato Spumante (nú 1.437, verður 1.850 kr.) frá Lini.

Nokkur vín til viðbótar verða á gömlum verðum eitthvað lengur fram í árið. Þau eiga það sameiginlegt að kosta mun minna en núverandi staða krónunnar gefur til kynna

Þetta eru t.d. Chianti Classico frá Fontodi, öll þrjú vínin frá Hubert Sandhofer, The Footbolt og The Laughing Magpie frá d'Arenberg, Poggio dei Gelsi og Tellus frá Falesco og Anima Umbra Rosso og Bianco frá Arnaldo Caprai.

Þetta vín er hugsanlega bestu kaupin okkar í Vínbúðunum sem stendur »

ÚR FUNDARHERBERGINU
Skoðanakönnun um miðana á flöskunum okkar

Miðarnir hafa nú verið á flöskunum okkar í meira en tvö ár.

Fyrst voru dýramyndir sem þá prýddu, síðan kom nýtt módel þar sem stílað var inn á einfaldleikann.

Enn á ný hugsum við okkur til hreyfings með nýja seríu af miðum og okkur þætti vænt um að heyra skoðanir sem flestra um notagildi miðanna:

Finnst þér miðinn yfir höfuð eiga að vera?

Notar þú þá til að þekkja flöskurnar í hillunum?

Heldur þú að þeir veki jákvæða forvitni þeirra sem þekktu miðana ekki áður?

Fannst þér miðinn betri núna (stílhreina útgáfan) eða eins og hann var áður (myndir af dýrum)?

Hefur þú hugmyndir sem þú vilt deila með okkur um hvernig þeir gætu litið út og hvað fram mætti koma á þeim þegar ráðist verður í gerð nýrrar seríu?

Segðu okkur hvað þér finnst!

Umræðan á Facebook »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Vínframleiðandi vikunnar

Ef okkur væri stillt upp við vegg og við beðin um að gefa upp hverjir væru okkar uppáhaldsframleiðendur væri erfitt að nefna ekki Luciano Sandrone.

Luciano er maður með bjarnarhramma sem býr til vín að því er virðist með silkihönskum. Það er almennt viðurkennt að á þessum bæ rís víngerðin með því hæsta sem gerist í Piemonte héraðinu.

Barolo Le Vigne 2003, Barbera d'Alba 2005 og Dolcetto d'Alba 2004 fást á sérlista Vínbúðanna.

Næsta sending kemur fljótlega (já því miður, á nýju gengi) og þar verður m.a. 2004 árgangur af Barolo-vínum framleiðandans en 2004 er einn sá allra besti frá upphafi.

Meira um Luciano Sandrone »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Vínsmökkun er fyrir alla.

Við förum í fyrirtæki og heimahús og höldum vínsmökkun með tilheyrandi fróðleik. Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

150 hollustu fæðutegundum heims

Það er ekki bara vegna þess að rauðvín og súkkulaði eru talin upp meðal 150 hollustu fæðutegunda heims í samnefndri bók e. Jonny Bowden, sem við erum svo hrifin af bókinni.

Hún er einfaldlega mjög haldbært og fróðlegt uppflettirit þegar kemur að upplýsingum og tillögum að hollu matarræði. Þú færð The 150 Healthiest Foods on Earth á Amazon

Syngjandi forsetafrú

Carla Bruni hefur getið sér góðs orðs, ekki bara sem núverandi forsetafrú og fyrrverandi fyrirsæta, heldur sem söngspýra og gott ef ekki lagahöfundur.

Geisladiskurinn Quelqu'un M'a Dit hefur hljómað mikið undanfarið á heimilinu. Áreynslulaus og þægileg kósítónlist. Aðallega sungið á frönsku. Þú færð diskinn á Amazon

Ástríðum á vínviðnum

Nei, þetta er ekki lostafull ástarsaga, nema hægt sé að kalla ferðalag vínunnenda á ítalskar vínekrur sem einvers konar ástarsögu.

Einn helsti samverkamaður sjónvarpskokksins Mario Batali, Sergio Esosito, flytur inn ítölsk vín í New York og hefur tekið saman hálfgerðar endurminningar og óð til vínsins. Skoðaðu bókina á Amazon

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.